Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd EES-samningsins.

595. mál
[18:17]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er örugglega ströng keppni hér stundum um mest óspennandi ræður en þar kemur flutningurinn líka sterkt inn. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og mig langar bara að koma inn á tvennt. Annars vegar varðandi fjármálaþjónustu og þann mikla halla sem við vorum í. Við erum komin yfir kúfinn á gerðum um fjármálaþjónustu og tafir stöfuðu fyrst og fremst af umfanginu, þær voru gríðarlega margar og sumar mjög flóknar og viðamiklar og mikil þýðing og við þurftum í rauninni að bæta okkur í verklagi og fjölga fólki til að ná stjórn og skipulagi á því sem hefur núna tekist. Það er auðvitað óheppilegt þegar þetta safnast upp en var hluti af stærri vanda. Varðandi húshitun og orkunýtni bygginga sem hv. þingmaður kom inn á þá fengum við þar undanþágu vegna þess að okkar húshitun er með jarðvarma og þá er orkusparnaður ekki jafn aðkallandi. Þessar nýrri útgáfur og/eða endurskoðuðu reglur eru í upptökuferli og þar verður skoðað hvort við getum eða viljum halda þeim undanþágum sem við höfum haft. Það er dæmi um mál sem skiptir miklu máli fyrir meginland Evrópu, að ná fram orkunýtni eða orkusparnaði vegna þess hvernig hús þar eru hituð, en á síður við um okkur. Það er skýringin á þessu.