Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

norðurskautsmál 2022.

646. mál
[19:12]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir framsöguna og vil aftur taka fram að mér finnst þetta líka merkilegur vettvangur og ekki síst fyrir þær sakir hvað það er lögð rík áhersla á réttindi frumbyggja og varðveislu þeirra menningararfs. Það er mjög mikilvægt að þessir hópar hafi aðgang að slíkum vettvangi eða alla vega hafi skilning og sama hvaða ættbálkar það eru þá hafa þeir sameiginlega hagsmuni af því að búa svona norðarlega og tilheyra minnihlutahópum. Eins og fram kom í framsögunni þá er þetta náttúrlega mjög óvanalegt ástand og ég ætla þá aftur að koma inn á Rússland. Rússland er í rauninni sett til hliðar af mjög eðlilegum ástæðum, það er fundað án Rússa, þannig að ég er svolítið forvitinn um það hver framtíð Rússa í þessu samstarfi er, hvort ætlunin er að halda áfram að funda án þeirra eða hvort það er fyrirhugað að Rússar verði hreinlega ekki lengur með. Er búið að ákveða eitthvað um hvernig það verður lagt upp á fundinum núna í apríl?