Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

norðurskautsmál 2022.

646. mál
[19:14]
Horfa

Frsm. ÍNSM (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóri Auðar Svanssyni fyrir andsvarið. Eins og hann kom inn á er þetta mjög sérstök staða og í rauninni hafa ekki verið haldnir formlegir fundir þingmannanefndarinnar núna í heilt ár heldur hafa verið haldnir óformlegir fundir og samtalinu þannig viðhaldið meðal þess hóps sem starfar í landsdeildum þessara sjö ríkja sem nú eiga í samstarfi. Á þessum tímapunkti er auðvitað ómögulegt að segja hvað gerist í framhaldinu en fundurinn nú í apríl er boðaður sem formlegur fundur þingmannanefndarinnar þó að aðeins séu boðaðir fulltrúar sjö ríkja. Það er samt mikilvægt að geta þess að í ákveðnu samstarfi, vísindasamstarfi á vegum Norðurskautsráðsins, halda ákveðnir afmarkaðir hópar áfram samstarfinu. En á sama tíma hefur orðið rof í gagnasöfnun yfir norðurskautið og ákveðnar upplýsingar sem ekki berast frá Rússlandi inn í þetta vísindasamstarf eins og staðan er núna. En það er í rauninni ekkert nema tíminn sem mun leiða það í ljós hvað gerist í framhaldinu. Auðvitað er sú sérkennilega staða uppi að Rússar fara með formennsku í Norðurskautsráðinu eins og er, en Norðmenn eru að taka við því kefli innan tíðar og þá skapast líka önnur staða til að ræða hvernig starfið heldur áfram á þessum vettvangi.