Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2022.

647. mál
[19:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og mig langar að ítreka eitt sem hv. þingmaður nefndi, þ.e. að í þessum ferðum er nefndin líka að hitta íslenska embættismenn sem eru að vinna að okkar málum, hvort sem það er innan EFTA eða EES. Það er rosalega mikilvægt að sú tenging myndist líka vegna þess að þegar eitthvað kemur upp á og þessir embættismenn koma og eru að kynna eitthvað fyrir nefndum þingsins, hvaða nefnd sem það er, þá erum við búin að hitta þetta fólk og þá höfum við miklu betri skilning á því sem það er að gera og af hverju við þurfum að styðja við það sem það er að vinna í. En hv. þingmaður spurði hvernig ég sæi fyrir mér að auka þetta starf. Ég held að það sé mikilvægt að efla sérstaklega EES-hlutann. Ég hefði viljað sjá kannski fleiri fundi eða kannski fleiri möguleika fyrir nefndarmenn til að hitta þingmenn í Evrópuþinginu og þá sem eru að leiða verkefni á ákveðnu sviði, finna leiðir til að við getum tekið meiri þátt í slíku með þeim sem utanaðkomandi aðili. Á vegum EFTA veit ég að hefur verið rætt t.d. að fjölga aðeins ferðum til þriðju landa, önnur lönd eru að gera það, þar væri einnig möguleiki á því að Ísland stæði til jafns við aðra í því. Ég held að það mikilvæga þarna sé að gera hluti sem tryggja að við myndum tengsl sem við getum síðan nýtt í starfinu.