Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. .

784. mál
[17:54]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð eiginlega að biðja hv. þingmann um að vera aðeins nákvæmari í spurningu sinni því að ég er hreinlega ekki alveg viss um það nákvæmlega í hvað hv. þingmaður var að vísa hér. (Gripið fram í.) Ég myndi vilja biðja hann um að endurtaka spurninguna og segja aðeins meira, því að hann tekur hér bara tilvitnun innan úr skýrslu, til þess að ég geti með einhverjum sæmilega viti bornum hætti reynt að svara hv. þingmanni.