Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 71. fundur,  1. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

[15:53]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Þetta er mikilvæg athugasemd sem hér er borin upp og ég tek undir hana. Það er algerlega óboðlegt að uppstokkun Stjórnarráðsins sé notuð sem einhvers konar skálkaskjól fyrir upplýsingaleynd, að ráðherra sé að fela sig á bak við uppstokkun Stjórnarráðsins og nota það sem einhvers konar leið til þess að klippa úr sambandi rétt þingsins til að fá upplýsingar um ákveðin atriði sem eiga sér stað á vettvangi framkvæmdarvaldsins. Við getum auðvitað ekki unað við þetta. Ég skora á hæstv. forseta að standa með þinginu í þessu máli.