svör við fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði nú bara að blanda mér í umræðuna vegna þess að það vill þannig til að sá sem hér stendur er ráðherra mennta- og barnamála, sem eru með sömu kennitölu og bæði háskólamál og menningarmál voru með fyrir þessa uppstokkun. Ég fékk einnig þessa skriflegu fyrirspurn. Það vill þannig til að upplýsingar um þessi tvö ráðuneyti liggja í núverandi mennta- og barnamálaráðuneyti og því munum við svara fyrirspurn fyrir þau ártöl sem hér um ræðir. Það er ekki nema von að hvorki háskólaráðherra né menningarráðherra geti svarað til um ártöl (Gripið fram í.) fimm ár aftur í tímann vegna þess að þau gögn liggja í kennitölu mennta- og barnamálaráðuneytis þar sem háskólaráðuneyti og menningarráðuneyti eru ný ráðuneyti, en ráðuneyti mennta- og barnamála er að taka saman svar við þessari fyrirspurn og við munum senda það hingað til þingsins.