Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti, ágætu þingmenn. Ég veit ekki hvort þið trúið en ég ætla að tala líka um flug á landsbyggðinni. Þetta er svolítið þema í dag í störfum þingsins. Eitt mikilvægasta verkefnið í tengslum við íslenska ferðaþjónustu er að skapa forsendur fyrir betri dreifingu erlendra ferðamanna um allt land. Allt Ísland allt árið, hefur lengi verið slagorð þess sem hér stendur. Það er þjóðhagslega mikilvægt að nýta betur þær fjárfestingar sem nú eru til staðar í innviðum sem tengjast ferðaþjónustunni allt árið. Millilandaflug um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll gegnir stóru hlutverki í þessu sambandi. Það hefur náðst mikill árangur á síðustu árum og mikilvægt er að efla áfram þessar fluggáttir inn í landið. Í sumar mun flugfélagið Condor fljúga í fyrsta skipti til Egilsstaðaflugvallar og Akureyrarflugvallar. Auk þess munu Niceair, Edelweiss og Transavia fljúga til og frá Akureyrarflugvelli. Aldrei hefur verið flogið til jafn margra staða í reglulegu flugi og gert verður í sumar. Áfangastaðirnir erlendis eru Kaupmannahöfn, Düsseldorf, Tenerife, Alicante, Zürich og Frankfurt, eins og kom fram í frétt RÚV í gær.

Rétt er að sá hér litlu fræi í tengslum við hugmyndir um uppbyggingu Kjalvegar. Hlutfall þeirra erlendu ferðamanna sem sækja Ísland og leigja sér bílaleigubíl fer sífellt vaxandi. Á þessu ári má reikna með að 60–70% erlendra ferðamanna leigi sér bíl sem hefur mikil áhrif á það hvernig erlendir ferðamenn dreifast um landið. Nýr Kjalvegur myndi að mati þess sem hér stendur hafa mikil áhrif í þá átt að stuðla að betri dreifingu ferðamanna um Ísland. Í þessu samhengi er rétt að benda á að vöxtur ferðaþjónustunnar á síðustu 10–15 árum hefur byggt upp þúsundir nýrra starfa á landsbyggðinni. Bættar samgöngur, hvort sem litið er til uppbyggingar alþjóðaflugvallanna á Akureyri og Egilsstöðum eða uppbyggingar sem snýr að hálendisvegum, eru þættir sem munu hafa mikil áhrif á uppbyggingu ferðaþjónustunnar til langrar framtíðar og sérstaklega þær byggðir sem standa fjærst suðvesturhorni landsins.

Forseti. (Forseti hringir.) Hér er um grundvallarmál að ræða fyrir landsbyggðirnar.