Störf þingsins.
Herra forseti. Ég kem hér upp í kjölfar þriggja stjórnarþingmanna úr Norðausturkjördæmi sem tala um alþjóðaflug og alþjóðaflug um flugvelli í því kjördæmi. En minn tilgangur hér er að vekja athygli á því ófremdarástandi sem skapaðist í liðinni viku þegar ekki tókst að manna sjúkraflug fyrir mann sem hafði loksins fengið hið gleðilega kall að utan, frá Svíþjóð, um að lifur væri fundin sem hægt væri að græða í hann. Maðurinn hafði beðið lifrarígræðslu um nokkra hríð og loksins barst símtalið um miðnætti og honum bauðst að koma en varð auðvitað að koma innan skamms tíma enda er ekki hægt að geyma líffæri í langan tíma. Það þarf að hefja aðgerð strax. Því miður kom í ljós að ekki var hægt að manna flugvél Ernis til að fara í þessa ferð þannig að það var ákveðið að leita annarra leiða, hvort það væri eitthvert annað flugfélag sem gæti sinnt þessu kalli. En því miður reyndist svo ekki vera. Flugvél Landhelgisgæslunnar, sem dómsmálaráðherra kynnti á dögunum að hann ætlaði að selja til að eiga fyrir öðrum rekstri, var ekki tiltæk. Hún var væntanlega í leigu erlendis til að Landhelgisgæslan gæti jú rekið sig. Svo fór sem fór, maðurinn komst ekki í þessa lífsnauðsynlegu aðgerð í Svíþjóð. Þetta er staða heilbrigðismála á Íslandi í dag. Þetta er staða innviða á Íslandi í dag og öryggismála. Flugvél Landhelgisgæslunnar er ekki tæk. Það eru samningar við flugrekstraraðila sem hafa tekið að sér að annast flug milli landa með veika sjúklinga í lífsnauðsynlegar aðgerðir en það var ekki hægt að manna þá vél. (Forseti hringir.) Ég held að við verðum að gera þá kröfu að ríkisstjórnin sinni störfum sínum fyrir allan almenning hér á landi og tryggi nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.