ákvarðanir nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka og nr. 270/2022 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn .
Virðulegi forseti. Ég kynni hér meirihlutaálit utanríkismálanefndar um þá tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021, nr. 70/2021 og nr. 270/2022 um breytingu við EES-samninginn. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ingólf Friðriksson frá utanríkisráðuneyti og Daða Ólafsson og Ragnheiði Guðnadóttur frá menningar- og viðskiptaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
Í fyrsta lagi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 frá 5. febrúar 2021, um breytingu á viðauka við EES-samninginn er varðar neytendavernd og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuráðsþingsins og ráðsins því tengt frá 27. nóvember 2019, um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins hvað varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd.
Í öðru lagi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2021 frá 5. febrúar 2002, um breytingu á viðauka við EES-samninginn sem varðar neytendavernd og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2019/770 frá 20. maí 2019, um tiltekna þætti varðandi samninga um afhendingu á stafrænu efni og stafrænni þjónustu.
b. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð þar að lútandi og tilskipun og um niðurfellingu tilskipunar því tengt.
Í þriðja lagi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 270/2022 frá 23. september 2022, um breytingar á viðauka er varðar félagarétt við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um breytingu á tilskipun að því er varðar notkun stafrænna tóla og ferla í félagarétti.
Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt.
Birgir Þórarinsson og Jóhann Friðrik Friðriksson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álit þetta í samræmi við heimild í 4. mgr. 28. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Undir álitið rita Bjarni Jónsson, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.