Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn.

104. mál
[14:21]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka flutningsmanni, Helgu Völu Helgadóttur, ásamt öðrum fyrir þessa tillögu sem ég get ekki annað en tekið undir. Mig langar aðeins til að spyrja út í það, af því að hér er heilmikil greinargerð og farið ofan í marga þætti og kostnaðaráætlun — það kemur hérna fram með ferðir vegna tannréttinga á ári — hvort flutningsmenn hafi kynnt sér eitthvað frekar og greint þann kostnað sem núverandi kerfi hefur í för með sér í mismunun hvað varðar búsetu barna eða þeirra sem eru að fara í tannréttingar. Það er ekki nóg með að það séu tvær ferðir á ári, því að kostnaðurinn er ekki bara fólginn í fargjaldinu heldur er líka uppihald, vinnutap foreldra og annað slíkt. Mér skilst að tvær ferðir á ári dugi skammt, því þótt um eðlilegar eða venjulegar tannréttingar sé að ræða þá þarf að fara fleiri ferðir. Hafa flutningsmenn eitthvað kynnt sér það hvernig þessu er háttað núna og hve mikil mismununin er í núverandi kerfi?