Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn.

104. mál
[14:22]
Horfa

Flm. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Það er skýr mismunun. Það er mismunun milli höfuðborgar og landsbyggðar þegar kemur að heilbrigðisþjónustu, t.d. nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu eins og þessari. Tvær ferðir á ári, þegar um er að ræða meðfæddan tanngalla eða eftir slys, eru engan veginn nægjanlegar. Það var ekki farið í þá rannsókn en ég hvet hv. velferðarnefnd til að skoða það. Það mun gagnast öllum, bæði þeim sem búa nærri höfuðborginni sem og þeim sem búa fjarri henni, ef tannréttingaþjónustan verður a.m.k. gerð gjaldfrjáls. Það mun gagnast öllum. Þetta er mikið réttlætismál fyrir allan almenning á Íslandi, ekki síst réttlætismál fyrir börn. Þetta er heilbrigðisþjónusta fyrir börn og ég held að við eigum bara að standa saman um að afgreiða þetta. Þó að við séum hér í dag að glíma við verðbólgu og erfitt efnahagsástand þá gátum við tekið af skarið undir forystu Guðbjarts heitins Hannessonar, sem þá var félagsmálaráðherra, eða velferðarráðherra eða hvað það hét þá, og heilbrigðisráðherra. Hann fór í þetta verkefni þá. Ríkisstjórnin stóð saman að því. Hér erum við að leggja þetta til enn einu sinni að við tökum nú tannréttingarnar inn, af því að þetta er risastórt velferðarmál. Það getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til framtíðar fyrir ungt fólk að glíma við mikla tannskekkju.