gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svörin og tek undir að þetta skiptir mjög miklu máli. Breytingar í þessa átt eru mikilvægar fyrir alla landsmenn, hvort sem er í höfuðborginni eða úti á landi, og þá líka hvað varðar t.d. þjónustu við þá sem eru í tannréttingum. Ég man t.d. að um nokkurra ára skeið kom sérfræðingur vestur á Ísafjörð, því að þetta snýst stundum bara um að skrúfa einhverja skrúfu og bæta við einhverjum teygjum og skoða. Hann gat tekið jafnvel 20 einstaklinga fyrir á einum degi eða eitthvað slíkt. Þetta er alveg gríðarlegur kostnaður og fólk horfir í það áður en það tekur ákvörðun um að fara með börnin sín í tannréttingar sem ekki eru endilega lífsnauðsynlegar eða nauðsynlegar, kannski bara útlitslega séð eða einhver skekkja sem getur síðan haft áhrif inn í framtíðina með höfuðverk, skökku tannbiti og öllu þessu. Ég hvet því velferðarnefnd til að skoða þetta vel og fá til sín einhverja sérfræðinga sem geta bent á margt í þessu sambandi sem ekki kemur endilega fram hér og eins samanburðinn við Norðurlönd og um allt land.