Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.

782. mál
[14:36]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Hér er verið að sameina stofnanir eins og hæstv. ráðherra nefndi réttilega og hann nefndi í því sambandi samlegðaráhrif. Þegar maður heyrir það hugtak þá veltir maður fyrir sér: Er það ekki sparnaður sem felst í samlegðaráhrifum? En að sama skapi sagði hæstv. ráðherra að það væri verið að fjölga störfum, fjölga ríkisstörfum. Nú hefur það verið gagnrýnt að þeim hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum misserum. Ég dreg ekki úr mikilvægi Vinnumálastofnunar. Sem betur fer er atvinnuleysi lítið núna og ég geri ráð fyrir því að mikið af þeim störfum sem Vinnumálastofnun er að sinna núna tengist umsækjendum um alþjóðlega vernd eða flóttamönnum. Sá kostnaður sem hefur hlaðist upp á ríkissjóð vegna umsókna um alþjóðlega vernd er orðinn verulegur. Á síðasta ári eru þetta a.m.k. 10 milljarðar og hér streyma inn umsóknir um alþjóðlega vernd. Það eru komnar þúsund umsóknir núna á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs og allt saman kostar þetta mikla peninga. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Í hverju felst sparnaðurinn þegar er verið að sameina svona stofnanir? Er ekki eðlilegt að því fylgi sparnaður og meiri skilvirkni og jafnvel fækkun starfa en hér nefndi hæstv. ráðherra að það væri verið að fjölga störfum? Ég vil biðja hæstv. ráðherra að fara yfir hver kostnaðurinn er sem fylgir þessu verkefni.