málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og hvet hann áfram í þessari vinnu. Eins og ég segi eru þetta allt mjög mikilvæg störf og mikilvæg starfsemi á þessum stöðum hvað varðar þennan hóp og ég tala nú ekki um að hlutfallið t.d. í Súðavík er yfir 33%, 33% íbúanna eru af erlendum uppruna, ég man ekki hvort það eru sjö eða átta tungumál töluð í skólanum, í svona litlum skóla sem telur kannski ekki 20 nemendur þannig að þetta er allt vinna. Ég gleymdi að minnast á menntaskólann líka, að fylgja innflytjendum frá leikskólaaldri og upp í það að þau eru farin að sækja vinnu og annað. Þetta er allt mjög mikilvægt og þarf að taka inn í þetta samtal. Ég vonast til þess að þetta nái fram að ganga eins og markmiðin eru hér í frumvarpinu. Það er betur heima setið en af stað farið ef það gengur ekki eftir og ég hvet bara ráðherrann til dáða og ég treysti honum til að halda því samtali áfram.