aukin verðmætasköpun við nýtingu þörunga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tillöguna. Hér er á ferðinni mjög áhugaverð tillaga að mínu mati. Hv. þingmaður nefndi það að fyrrum þingmaður, Silja Dögg Gunnarsdóttir, hefði flutt þessa tillögu á 151. þingi, að mig minnir. Fyrrverandi hv. þingmaður skrifaði meira að segja ágæta bók um þörunga, mjög áhugaverða bók sem ég hef lesið og þakka fyrir hana.
Það er margt mjög áhugavert sem kemur fram í þessari tillögu og bara sögulega líka. Hér er áhugaverður kafli þar sem fjallað er um nýtingu þörunga og meðal annars minnst á fyrstu heimildir um iðnaðarframleiðslu á þangi hér á landi á 17. öld, auk þess einnig meðal annars í Noregi, margt mjög áhugavert. Einnig fannst mér áhugavert að sjá það hér að þörungar eru fjórum sinnum virkari en trén í að binda koltvísýring. Það finnst mér vera mjög áhugavert, sérstaklega í allri þessari kolefnisumræðu sem við erum nú þátttakendur í og er mikilvægt að sinna þegar kemur að loftslagsmálunum. Það er gaman að lesa þessa tillögu. Hún er mjög áhugaverð og sannarlega mikilvægt að þessir möguleikar verði kannaðir til að auka okkar verðmætasköpun í nýtingu þörunga. Mér finnst einnig áhugavert þegar talað er um fyrirtæki sem hafa komið að þessu.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann um rannsóknastyrki til nýsköpunar við nýtingu þörunga. Hvert er aðgengið að slíkum styrkjum? Þekkir hv. þingmaður þetta fyrirkomulag (Forseti hringir.) og hvort það sé auðvelt að sækja í nýsköpunarstyrki hvað þetta varðar?