Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

aukin verðmætasköpun við nýtingu þörunga.

119. mál
[15:41]
Horfa

Flm. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir áhuga á málinu og góða umsögn. Ég tek undir þetta hjá honum. að það skiptir máli að byggja vel undir þessa atvinnugrein. Þetta á sér langa sögu en þótt við getum farið allt aftur til 17. aldar þegar hér fór fram ýmis iðnaðarframleiðsla á þangi þá getum við kallað þetta nýsköpunargrein hér á landi. Ég tel að þeir sem hafa sótt styrki hvað varðar þessa framleiðslu eigi jafna möguleika inn í þá sjóði sem eru til þess bærir að sækja í hvað þetta varðar. Ég þekki ekki nákvæmlega hvort þeim hafi sérstaklega verið hampað eða hafnað. En ég tel mjög mikilvægt, af því að þessi vinna sem fer fram er mikil undirbúningsvinna og er mjög mikilvæg, og að það felist góður ávinningur í því, að styrkja og tryggja þessa framleiðslu hér á landi, eins og kom fram í þessari greiningu hjá Boston Consulting Group. Þetta er vaxandi grein í heiminum og til verðmætasköpunar og það eru mikil verðmæti þarna undir. Ég held að það sé allra góðra gjalda vert að styrkja þá rannsakendur sem eru að þróa það að rækta þörunga til manneldis og vörur úr þeim.