Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

grunnskólar.

128. mál
[16:55]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek heils hugar undir það sem fram kom í máli hennar. Ég held einmitt að lykilatriðið í þessu öllu saman sé að við séum sammála um eitt: Að byggja upp öflugt skóla- og menntakerfi fyrir börnin okkar. Hvort sem það eru opinberir eða sjálfstætt starfandi skólar breytir mig svo sem litlu máli, en bara að þeir búi við sömu umgjörð og veiti börnunum okkar góða menntun.

Svo ég fari kannski aftur inn í það sem ég byrjaði á í fyrra andsvari mínu, þá lít ég svo á enn í dag — ég vona að við þróumst áfram og þessum stólum og sjálfstætt starfandi skólum fjölgi — að þetta séu í raun takmörkuð gæði. Þess vegna held ég að þessi viðmið hafi verið varðandi 75%, vegna þess að sveitarfélögin verða líka að geta réttlætt það að greiða 100%. Við erum í raun og veru — ég ætla ekki að segja að úthluta, en ég vona að þingmaðurinn skilji hvert ég er að fara — ef allir myndu velja að fara í Hjallastefnuna þá yrði skólinn fljótt sprunginn. Þarna eru líka krakkar í vinahópum og slíkt sem vilja kannski elta sína félaga, hvort sem þau eru í sama íþróttafélagi eða innan sama hverfis. Þetta tengist því hvernig við leysum þessi vandamál til framtíðar.

Varðandi Reykjavík þá leikur mér forvitni á að vita, af því að nú var Viðreisn í meiri hluta á síðasta kjörtímabili og er þar enn, hvers vegna ekki hafi verið hreyft meira við þessum málum þar.