Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

fjármögnun á tækjakosti til bráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum.

147. mál
[17:16]
Horfa

Flm. (Berglind Harpa Svavarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Í dag fer fram hér á Alþingi fyrri umræða þingsályktunartillögu minnar varðandi fjármögnun á tækjakosti til bráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Það er þakkarvert að þingsályktunartillaga mín sé komin á skrið, á sína mikilvægu vegferð að koma bráðaþjónustu í lag á Austurlandi.

Það er lífsbjargandi úrræði að framkvæma upplýsta greiningu og faglega meðferð á sem stystum tíma. Þannig stöndum við vörð um rétt okkar til heilbrigðisþjónustu, bætum vinnuumhverfi lækna og stuðlum að því að læknar treysti sér frekar til að starfa í vinnuumhverfi á þeim stað sem er í rauninni í lengstu flugleið frá sérhæfðu bráðaþjónustunni. Þrátt fyrir útgjöld mun aukinn tækjakostur einnig leiða til sparnaðar og tel ég efalaust að greiningartækin verði fljót að borga sig upp því hvert sjúkraflug til Egilsstaða kostar yfir 1 millj. kr. Sjúkraflug verða færri, bæði vegna vissu um heilsufar fólks og vegna þess að hægt verður að bregðast strax við með lyfjum í kjölfar greiningar og stoppa þannig lífsógnandi ástand sem hefur skapast. Í mörgum tilvikum kemur í kjölfar greiningar í ljós að ástand einstaklings sé ekki lífsógnandi og ekki þörf á sjúkraflugi. Og þó að komi til sjúkraflugs eftir fullbráðagreiningu þá heldur fólk lífi sínu, heilsu sinni og margir geta farið aftur út á vinnumarkaðinn og borgað áfram sína skatta til samfélagsins.

Við þurfum oft að ná hausnum upp úr sandinum til að sjá yfir sviðið og sjá bestu lausnina. Austurland er gríðarlega víðfeðmt svæði sem nær yfir 15.000 km² svæði og er í lengstu flugleið frá sérhæfðu heilbrigðisþjónustunni, sérhæfðri bráðaþjónustu. Að auki er Fjórðungssjúkrahúsið okkar staðsett í Neskaupstað í útjaðri Austurlands og þurfa því flestir íbúar Austurlands að ferðast um langan veg til að njóta þeirrar þjónustu sem sjúkrahúsið býður upp á. Þegar um bráðaþjónustu er að ræða getur hver mínúta skilið á milli feigs og ófeigs. Það er því ólíðandi að sjúklingur þurfi að eyða dýrmætum tíma sínum í að ferðast langa leið til Neskaupstaðar til þess eins að fá þá greiningu að nauðsynlegt sé að lífsbjargandi meðferð fari fram á Landspítalanum og þar sem ekki er víst að sjúklingur í þörf fyrir bráðaþjónustu hafi heldur þann tíma sem þetta ferðalag krefst.

Læknavísindin í dag ganga út á öfluga tækni til að hægt sé að veita bestu heilbrigðisþjónustu hverju sinni. Árið 2023 hlýtur það að vera lágmarkskrafa að heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni sé tryggður nauðsynlegur tækjakostur hverju sinni. Mönnunarvandi lækna á landsbyggðinni er oft nefndur og ýmsar hugmyndir um af hverju hann stafar en ef aðstæður eru þannig að hvorki tækni né fullnægjandi tækjakostur er til staðar í þeirra vinnuumhverfi, svo fjarri Landspítalanum, þá skil ég vel að læknar hugsi sig tvisvar um að starfa við þær aðstæður. Líf og heilsa fólks er undir því komið að rétt upplýst viðbrögð séu viðhöfð hverju sinni á sem skemmstum tíma. Þann tækjakost sárvantar á bráðamóttökunni á Egilsstöðum, í sveitarfélagi sem er um 10% af heild af flatarmáli landsins og þrír fjallvegir á leið fólks að þjónustunni í dag. Þegar þangað er komið þá vantar tækjakostinn til að bjarga lífi þeirra og heilsu árið 2023.

Í þingsályktunartillögu minni þá eru þetta lykilatriði: Austurland er yfir 15.000 km². Á Egilsstöðum er alþjóðaflugvöllur, sjúkraflugvöllur og miðja Austurlands. Fjórðungssjúkrahúsið er staðsett í útjaðri Austurlands og ekki möguleiki að keyra alla frá Austurlandi þangað til bráðagreiningar. Eftir langan ferðatíma bráðveiks fólks á Austurlandi til að fá faglega greiningu tekur við bið eftir sjúkraflugi og sjúkraflugið suður. Mínúturnar skipta líka máli á Austurlandi í bráðaerindum því Austurland er í lengstu flugleið frá sérhæfðri bráðaþjónustu eða um 400 km í flugleið. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hefur í bókunum sínum lagt áherslu á að fullbráðagreining fari fram bæði í Neskaupstað og á Egilsstöðum vegna staðsetningar við flugvellina. Fullnægjandi greiningartæki vantar á bráðamóttökunni á Egilsstöðum þar sem alþjóðaflugvöllurinn er og sjúkraflug kemur að og er því vinnuaðstaða lækna þar til skammar og aðstæður íbúa lífshættulegar í bráðafasanum.

Þessi rök eru grundvöllur þess að ég legg fram þingsályktunartillögu mína hér til fyrri umræðu í dag. Þá hefur hæstv. heilbrigðisráðherra sýnt málinu áhuga sem ég vona að sé merki um jákvæðar undirtektir hans. Ég vonast til að halda því samtali áfram þó að ég sé aðeins hér inni á þingi í skamman tíma.

Virðulegi forseti. Nú þurfum við öll að sameinast um að standa vörð um líf og heilsu íbúa Austurlands og tryggja með tækjakaupum eins öfluga bráðaþjónustu og hægt er, svo fjarri Landspítalanum sem þeir íbúar eru. Ég legg svo til að að lokinni fyrri umræðu gangi málið til hv. velferðarnefndar.