Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.

159. mál
[17:27]
Horfa

Flm. (Bjarni Jónsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér í dag fyrir þingsályktunartillögu um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Flutningsmenn málsins að þessu sinni eru tveir; sá sem hér stendur ásamt hv. þm. Bergþóri Ólasyni.

Sjálfur hef ég lengi haft þá skoðun að Alexandersflugvöllur sé hinn ákjósanlegasti kostur þegar litið er til varaflugvalla og lagði ég meðal annars fram fyrirspurnir þess efnis sem varaþingmaður Norðvesturkjördæmis. Megininntak þessarar þingsályktunar, sem við ræðum hér í dag, er sem hér segir:

Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að láta gera ítarlega athugun á kostum þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll, Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll. Þá er ráðherra falið að kynna þær niðurstöður með vorinu.

Helstu ástæður þess eru meðal annras heppileg landfræðileg lega Alexandersflugvallar með tilliti til jarðhræringa og/eða eldgosa sem hamlað geta flugsamgöngum en við höfum verið rækilega minnt á eldfjallavirkni í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og á Reykjanesi og þá áhættu sem það skapaði fyrir millilandaflug á undanförnum árum. Ég tel mikla þörf á varaflugvelli þar sem aðstæður til lendingar og flugtaks eru sem bestar, ekki mjög fjarri Keflavíkurflugvelli og einnig flugvellinum á Akureyri og ljóst að aðrir flugvellir uppfylla þau skilyrði ekki eins vel. Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki er aðeins 120 km frá Akureyri. Milli Sauðárkróks og Reykjavíkur eru um 295 km. Milli Akureyrar og Reykjavíkur eru um 390 km, milli Reykjavíkur og Egilsstaða um 650 km og milli Akureyrar og Egilsstaða um 265 km. Það er því töluverður munur á vegalengdum og ferðatíma á milli Egilsstaða og Reykjavíkur annars vegar og Sauðárkróks og Reykjavíkur hins vegar. Í gögnum frá Vegagerðinni frá árinu 2019 kemur fram að þjóðvegurinn frá Sauðárkróki til Reykjavíkur hafi aðeins verið lokaður í 0,7 daga á ári frá árinu 2011 en á sama tíma hafi þjóðvegurinn frá Egilsstöðum til Reykjavíkur lokast í 2,5 daga á ári á syðri leiðinni en 9,7 daga ef norðurleið var farin. Færð á vegum hlýtur að teljast mikilvæg í þessu samhengi.

Flugvöllurinn sjálfur er vel staðsettur þar sem aðflug er gott, fjörðurinn víður og lítið um hindranir. Flugvöllurinn vísar í norður og suður sem eru einnig ríkjandi vindáttir í Skagafirði. Þá er staðsetning vallarins hagstæð með tilliti til snjóa og álags á flugbrautum.

Málið kom fyrst fram á 144. löggjafarþingi, þá í flutningi Ásmundar Einars Daðasonar og hefur síðustu árin verið flutt af Sigurði Páli Jónssyni.

Virðulegi forseti. Að lokum vil ég segja að öryggi samgangna þarf að tryggja með sem bestum hætti, hvort sem um er að ræða samgöngur á jörðu, sjó eða í lofti. Nú eru fjórir meginflugvellir á Íslandi, Reykjavíkurflugvöllur, Keflavíkurflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur og Akureyrarflugvöllur. Þessir flugvellir gegna allir mikilvægu hlutverki í samgöngum innan lands og á milli landa sem farþega- og vöruflutningavellir og sem öryggistæki. Ég tel einsýnt að verulegur ávinningur verði af uppbyggingu við Alexandersflugvöll og tel ljóst að slíkur flugvöllur muni þjóna Akureyri og Egilsstöðum vel sem varaflugvöllur og tryggja og treysta þá mikilvægu starfsemi sem þar er rekin í sambandi við ferðaþjónustu og flug almennt.

Að því sögðu vænti ég þess að tillagan fái góða og gegna vinnu í hv. umhverfis- og samgöngunefnd.