Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 78. fundur,  9. mars 2023.

uppbygging Suðurfjarðavegar.

230. mál
[14:20]
Horfa

Flm. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um uppbyggingu Suðurfjarðavegar. Ásamt þeim er hér stendur er Berglind Ósk Guðmundsdóttir á málinu. Tillagan fjallar um að Alþingi álykti að fela innviðaráðherra að flýta uppbyggingu Suðurfjarðavegar, þ.e. þjóðvegar 1 milli Reyðarfjarðar og Breiðdalsvíkur á austursvæði í samgönguáætlun. Hönnun og útboði á uppbyggingu vegarkaflans verði flýtt og fari fram á yfirstandandi kjörtímabili en ekki á þriðja tímabili samgönguáætlunar.

Ég ætla að lesa upp þessa stuttu greinargerð sem fylgir þingsályktuninni:

„Með kraftmikilli uppbyggingu atvinnulífsins á undanförnum árum hefur umferð aukist um Suðurfjarðaveg, m.a. vegna skóla-, þjónustu- og atvinnusóknar innan sameinaðs sveitarfélags, Fjarðabyggðar, ferðaþjónustu og síðast en ekki síst stórfelldra vöruflutninga til og frá höfnum svæðisins vegna álframleiðslu, öflugs sjávarútvegs og laxeldis.

Ljóst er að Suðurfjarðavegur er mikill farartálmi með hættulegum vegarköflum og þremur einbreiðum brúm, þar með talinni brúnni yfir Sléttuá í Reyðarfirði sem er umferðarþyngsta einbreiða brúin á Austurlandi. Vegarkaflinn milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar þykir sérlega hættulegur með mörgum blindhæðum og kröppum beygjum og er auk þess að mestu leyti utan þjónustusvæðis farsímasambands. Suðurfjarðavegur er 33,7 km langur.

Kaflinn milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur hefur verið metinn áhættumesti vegarkafli landsins í áraraðir í skýrslum EuroRAP um öryggi vega. Í skýrslum EuroRAP er horft til þess hvar flest alvarleg slys verða miðað við umferðarþunga (þ.e. látnir og alvarlega slasaðir á hverja milljón ekinna kílómetra). Þá kemur kaflinn út sem einnar stjörnu vegur af fimm mögulegum í öryggisskoðun EuroRAP, sem metur öryggi vegarins og öryggissvæðisins sem fylgir.

Á undanförnum árum hafa orðið alvarleg slys á þessum kafla. Í ljósi þess hve hættulegur vegarkaflinn er og með tilliti til ört vaxandi umferðarþunga, m.a. þungaflutninga, þarf að setja Suðurfjarðaveg í forgang í samgönguáætlun.“

Frú forseti. Ástand einbreiðra brúa á Suðurfjörðum fer hratt versnandi og umferðarþyngsta brúin, yfir Sléttuá í Reyðarfirði, er beinlínis orðin hættuleg og þolir hún ekki mikið lengri bið eftir framkvæmdum. Ástand vegamála á Suðurfjörðum Austurlands meðfram þjóðvegi 1 er farið að hafa hamlandi áhrif á alla uppbyggingu. Brúin í Reyðarfirði þolir ekki þungaflutninga og þurfa stór atvinnutæki að fara yfir Sléttuá á vaði. Sama má segja um botn Fáskrúðsfjarðar. Þar eru brýr sem eru farnar að hrópa á viðhald og síðast en ekki síst er rétt að ítreka hversu stórhættulegur vegarkaflinn frá Fáskrúðsfirði yfir til Stöðvarfjarðar er. Það má með sanni segja að hvergi sé brýnna að ráðast í vegbætur úti á landi á þjóðvegi 1 en á Suðurfjarðavegi. Hér er um mikilvægt umferðaröryggismál að ræða og nauðsynlegt að framkvæmdum verði flýtt í nýrri samgönguáætlun sem kemur inn í þingið á næstu vikum.