ókeypis fræðsla og þjálfun foreldra barna með ADHD.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér þingsályktunartillögu mína um ókeypis fræðslu og þjálfun foreldra barna með ADHD en tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela mennta- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra að koma á fót fræðslu og þjálfun foreldra barna, allt að 16 ára, með ADHD strax við greiningu. Fræðslan og námskeiðin standi til boða þeim að kostnaðarlausu.“
Fjölmargir einstaklingar glíma við ofvirkni og athyglisbrest sem í daglegu tali er oft kallað ADHD. Einkenni ADHD skjóta almennt upp kollinum snemma á æviskeiði einstaklings, um 7 ára aldur, og geta haft áhrif á alla þætti lífsins, svo sem nám, vinnu og félagsleg samskipti. Rannsóknir sýna að allt að eitt af hverjum tíu börnum glímir við ADHD. Það þýðir að í 20–30 manna kennslustund eru líklega um 2–3 einstaklingar með ADHD.
Uppeldi barna með ADHD getur reynst frábrugðið uppeldi barna án ADHD. Foreldrar verða að aðlaga sig að aðstæðum, upplifun og einkennum ADHD sem getur leitt til þess að foreldrar eru óvissir um hvaða skref eigi að stíga næst í uppeldinu. Flestir kynna sér ADHD-greininguna ítarlega og allt sem hún felur í sér og það hefur oft gefið góða raun. En foreldrar barna með ADHD eru þó allflestir á sama máli, þeir vilja læra meira um það sem getur aðstoðað þá við uppeldið og börn þeirra við að komast í gegnum nám og vinnu ásamt því að auka félagslega færni þeirra.
Á síðustu árum hafa verið sett á laggirnar námskeið sem bjóða upp á fræðslu og þjálfun fyrir foreldra barna með ADHD og gerðar hafa verið rannsóknir á gagnsemi þeirra fyrir foreldra og börn. Á þeim námskeiðum sitja foreldrar fyrirlestra, fá lesefni og gera verkefni sem tengjast uppeldi barna með ADHD. Námskeið sem þessi hafi verið talin árangursrík. Foreldrar hafa almennt veitt námskeiðunum jákvæða umsögn þar sem þeir telja að námskeiðin hafi hjálpað þeim og börnunum og rannsakendur og foreldrar töldu námskeiðin hafa haft jákvæð áhrif á námshæfileika og félagslega færni barnanna ásamt því að auka þekkingu og skilning á ADHD.
Hér á landi eru mikil tækifæri til staðar með setningu slíkra námskeiða. Einnig er nauðsynlegt að slík námskeið verði aðgengileg öllum foreldrum og eða forráðamönnum barna með ADHD óháð efnahag. Því er talið að seta á námskeiði eigi að bjóðast þeim að kostnaðarlausu. Við eigum að hafa það að markmiði að einstaklingar með ADHD eigi auðveldara með alla fasa daglegs lífs ásamt því að byggja frekari skilning og þekkingu á ADHD sem margir Íslendingar, bæði ungir sem aldnir, glíma við í dag.
Með á þessari tillögu minni eru hv. þingmenn Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Gísli Rafn Ólafsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson, Wilhelm Wessman, Oddný G. Harðardóttir og Logi Einarsson.
Virðulegur forseti. Það er mín von að ályktunin verði samþykkt og ríkisstjórnin hefji strax vinnu við setningu slíkra námskeiða hér á landi sem standi foreldrum og forráðamönnum barna með ADHD til boða þeim að kostnaðarlausu og með markvissum hætti. Það er mikilvægt að við hugum að því hvernig við ætlum að gefa foreldrum barna með ADHD aukin verkfæri og aukið sjálfstraust til að leiðbeina börnum í gegnum lífið því það að vera með ADHD getur verið ofurkraftur ef við sköpum börnum réttar aðstæður, bæði heima og í skólakerfinu.