Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

Fstaðfesting kosningar.

[15:02]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Herra forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Sigurjóns Þórðarsonar sem 4. varaþingmanns á lista flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosninguna og kjörgengið og mælir einróma með staðfestingu kosningar Sigurjóns Þórðarsonar.