Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:10]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að fagna sérstaklega áhuga hæstv. forseta á litteratúr úrskurðarnefndar um upplýsingamál og túlkun hennar á upplýsingalögum. Nefndin komst nefnilega að þeirri niðurstöðu núna fyrir helgi að það væri óheimilt að halda lögfræðiálitinu sem hér er rætt um frá almenningi á grundvelli undanþágu í 3. tölulið 6. gr. upplýsingalaga. Það sem er athyglisvert hér er að yfirstjórn Alþingis hefur einmitt synjað fjölmiðli um aðgang að þessu skjali á sama ranga lagagrundvellinum. Þetta held ég að Alþingi ætti að taka til sín. Hér höfum við þingmenn kallað látlaust eftir því að ekki bara greinargerðin sjálf verði birt heldur líka þetta lögfræðiálit, en ekki hefur verið orðið við því. Í lögfræðiálitinu kemur svo fram mjög sannfærandi rökstuðningur fyrir því að upplýsingaréttur almennings taki til greinargerðarinnar sjálfrar um Lindarhvol ehf., enda hafi stjórnsýsla Alþingis verið felld undir gildissvið upplýsingalaga 2019 sem aftur hrekur (Forseti hringir.) allar þær röksemdir sem komu fram í máli stjórnarmeirihlutans á mánudaginn í síðustu viku, þegar mér var bannað með meirihlutavaldi að spyrja spurninga um innihald greinargerðarinnar.