greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti vill taka fram að hann tekur að sjálfsögðu mark á úrskurðarnefnd um upplýsingamál, bæði í þeim úrskurði sem féll fyrir helgi og varðar þá afhendingu frá Lindarhvoli, en auðvitað verður farið yfir það hér hvaða afleiðingar þetta hefur varðandi birtingu hér innan húss. En forseti tekur líka mark á þeim lögskýringum og sjónarmiðum sem koma fram í eldri álitum úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem varða greinargerð setts ríkisendurskoðanda, og forseti getur vísað í a.m.k. þrjá úrskurði frá árinu 2021 sem fela það í sér að sérregla 15. gr. laga um Ríkisendurskoðun (Gripið fram í.) eigi að gilda hér en ekki önnur sjónarmið.