greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti. Af því forseti talar hér um að hann taki mark á hinu og þessu þá tekur hann ekki mark á forsætisnefnd Alþingis sem öll vill birta þessa greinargerð. Hann tekur ekki mark á skýru lögfræðiáliti sem hann aflaði sér sjálfur, bara vegna þess að svarið er honum ekki hagfellt. Staðan sem Alþingi er sett í vegna þessarar afstöðu forseta er ömurleg, að hingað séu send inn bréf, hingað séu sendar inn greinargerðir en Alþingi fær ekki að sjá, fjölmiðlar fá ekki sá, almenningur fær ekki að sjá vegna þess að forseti Alþingis, einhverra hluta vegna, stendur einn í brúnni með þá afstöðu með formanni Sjálfstæðisflokksins að við eigum ekki að fá að sjá. Við eigum ekki að fá að vita. Ég veit ekki hvað stendur í þessari greinargerð. Kannski er allt í mjög miklum sóma. En ég skil ekki hvernig það á að vera boðlegt að Alþingi sé í þeirri stöðu þegar forsætisnefndin öll er einhuga um það eftir lögfræðiálit að birta okkur ákveðin gögn, að þá geti forseti staðið í vegi fyrir því, af því bara. (Forseti hringir.) Er einhugur um það í ríkisstjórninni að þetta sé framkoma sem á að líðast gagnvart Alþingi Íslendinga?