Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:15]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Já, þetta er forvitnileg lesning, þetta lögfræðiálit sem hér er verið að vísa til. En hún er að sama skapi ákaflega dapurleg staðan sem Alþingi Íslendinga og ég vil meina Ríkisendurskoðun er í líka. Það er nefnilega þannig að settur ríkisendurskoðandi var ríkisendurskoðandi. Það er komin afurð frá þessum ríkisendurskoðanda til þingsins sem þessi ríkisendurskoðandi vill að þingið sjái og almenningur. Hæstv. forseti þingsins tekur það upp hjá sjálfum sér og fer gegn eigin forsætisnefnd um að það eigi að sitja á þessu gagni áfram. Við erum þá í þeirri stöðu að undir eru hundruð milljarða, það leikur vafi á hvað þarna gerðist. Vinna eins ríkisendurskoðanda stangast á við vinnu annars ríkisendurskoðanda og þá er ekki hægt að gera neitt annað heldur en að aflétta leyndinni þannig að eftirlitshlutverk þingsins verði virkjað og við getum raunverulega komist að því hvað þarna var í gangi. Leyndin á þessu skjali er orðið sjálfstætt vandamál sem skaðar hagsmuni alls almennings, sem skaðar hagsmuni Alþingis og skaðar hagsmuni Ríkisendurskoðunar líka.