Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:19]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hér vitnar hæstv. forseti til úrskurða úrskurðarnefndar um upplýsingamál til að réttlæta leyndina um greinargerð setts ríkisendurskoðanda, en þessir úrskurðir hafa bara ósköp litla þýðingu fyrir málið sem hér er til umfjöllunar af því að þeir fjalla um það hvort stjórnvöld, sem fengu tiltekið skjal til umsagnar á grundvelli 14. gr. laga um ríkisendurskoðanda vegna umsagnarferlis sem átti sér stað í vinnu ríkisendurskoðanda, eigi að afhenda skjalið á grundvelli upplýsingalaga eða ekki. En þessar reglur í lögum um ríkisendurskoðanda, sem kunna að ganga upplýsingalögum framar, þær geta samkvæmt efni sínu ekki átt við um skjal sem ríkisendurskoðandi sendir Alþingi, því Alþingi heyrir ekki undir eftirlitshlutverk ríkisendurskoðanda. (Forseti hringir.) Alþingi fær ekki send til kynningar eða umsagnar vinnuskjöl frá Ríkisendurskoðun. Þegar eitthvað sem einhvern tímann var talið vinnuskjal er komið frá ríkisendurskoðanda til Alþingis þá er það ekki lengur vinnuskjal, (Forseti hringir.) og vel á minnst þá leit settur ríkisendurskoðandi sjálfur ekki svo á að skjalið sem hann sendi forseta væri neitt vinnuskjal heldur greinargerð.