Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 79. fundur, 13. mars 2023.
greinargerð um sölu Lindarhvols.
Forseti verður að geta þess sem hefur komið fram áður, að þegar þáverandi settur ríkisendurskoðandi sendi forseta Alþingis bréf sumarið 2018 tók hann fram að verkinu væri ekki lokið og enn ætti eftir að fá ýmsar upplýsingar. Hann hefði sent afrakstur sinnar vinnu til Ríkisendurskoðunar og vildi upplýsa forseta þingsins á þeim tíma um stöðu verkefnisins eins og hún var.