153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

greinargerð um sölu Lindarhvols.

[15:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Mikið rétt, upplýsa þingið um stöðu málsins. Nú vitnar forseti í að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sé eitthvað að skoða lokaskýrsluna sem var skilað en ef það á að fjalla um hana í einhverju samhengi þá þarf greinargerð setts ríkisendurskoðanda að vera aðgengileg fyrir fólk til að geta skoðað og borið saman. Ef það er verið að fjalla hérna um mál frá tveimur ríkisendurskoðendum sem stangast að einhverju leyti á þá má ekki vera leynd yfir öðru skjalinu, (Gripið fram í.) það bara gengur ekki upp. Þingmenn geta ekki með góðu móti fjallað um efni á þennan hátt, þar sem eitt skjal sem varðar hag almennings, alveg tvímælalaust, sölu á upp á hundruð milljarða af eignum, er opinbert en leynd yfir hinu skjalinu. Það gengur ekki upp. (Forseti hringir.) Við erum að tala hérna um skjal sem er hjá þinginu og mat úrskurðarnefndar upplýsingamála (Forseti hringir.) gagnvart einhverju sem var hjá Ríkisendurskoðun kemur því ekkert við. Við erum að tala um skjal (Forseti hringir.) hjá þinginu. Það er greinargerð sem ríkisendurskoðandi sendir til þingsins til upplýsingar (Forseti hringir.) fyrir þingið.