Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 79. fundur, 13. mars 2023.
greinargerð um sölu Lindarhvols.
Virðulegur forseti. Mig langar að beina spurningu til hæstv. forseta sem varðar það hvort forseti líti svo á að úrskurðir úrskurðarnefndar upplýsingamála, sem hæstv. forseti hefur nefnt hér á fyrri stigum, banni birtingu greinargerðarinnar. Þetta er atriði sem ég held að skipti máli upp á frekari umræðu, hvort forseti líti svo á að þessir úrskurðir banni Alþingi birtinguna. Bara þessi einfalda spurning, ef hæstv. forseti myndi skýra þinginu frá afstöðu sinni til hennar.