greinargerð um sölu Lindarhvols.
Virðulegur forseti. Þetta fyrirbæri Lindarhvoll sem við ræðum hér sýknt og heilagt var stofnað til að sjá um sölu á svokölluðum stöðugleikaframlögum sem fengust þegar kröfuhafarnir flúðu land. Við erum ekkert að tala um neinar smáupphæðir hvað þetta varðar, við erum að tala um hundruð milljarða. Ég hef heyrt töluna 600 milljarða nefnda í þessu sambandi, að við höfum fengið út úr þessum sölum öllum 600 milljarða. Þess vegna er mikilvægt að við vitum allt um hvernig var farið með þessar eignir. Ég fæ ekki séð þegar ég les endanlega skýrslu að hún sé eitthvað opin og gagnsæ þegar eignir eru númeraðar, eign nr. 1, eign nr. 2 og eign nr. 3. Ég átta mig ekkert á því. Var verið að selja Íslandsbanka (Forseti hringir.) eða var verið að selja hitt eða þetta? Er ekki rétt að skýra það bara betur fyrir almenningi hvernig við erum að fara með almannafé? Kallar þetta ekki á að allt sé uppi á borðinu?