útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ágætt að þetta kemur fram. Í frumvarpinu er víða verið að gera breytingar í átt til aukinnar skilvirkni. En af því að hv. þingmaður nefnir sérstaklega 30 daga regluna þá er það rétt að þetta er ein af veigamestu breytingunum í þessu frumvarpi, þ.e. að eftir 30 daga þá falli þjónusta við viðkomandi niður, þ.e. einstaklingur sem hefur fengið neitun og hefur farið að öllum lagalegu úrræðum sem honum standa til boða og niðurstaðan er sú að honum beri að yfirgefa landið, hann falli ekki undir verndarkerfi hælisleitenda og þurfi því að yfirgefa landið. Í dag er þetta þannig að viðkomandi getur áfram fengið þessa þjónustu þó að hann sé í raun og veru ólöglegur í landinu og 30 daga fresturinn er talinn hæfilegur. Ég spurði sérstaklega að þessu þegar Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kom á fjarfund nefndarinnar, hvort þeir teldu þennan tímafrest vera hæfilegan og þeir töldu svo vera.
Af því að hv. þingmaður spyr hvort hér sé verið að blekkja einhvern af því að sveitarfélögin eigi hugsanlega aðkomu að þessu þá tel ég það alls ekki vera. Það er alveg rétt að ef einstaklingur er í landinu ólöglega og þessi þjónusta hefur fallið niður og hann lendir í einhverjum ógöngum þá eru ákveðin úrræði í sveitarstjórnarlögunum. En við teljum svo vera, meiri hlutinn, að þessi 30 daga frestur sé fullnægjandi og því yrðu þau tilvik þar sem slíkt myndi gerast afar fá.