útlendingar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir hans innlegg hérna í þessa umræðu. Það vita það svo sem allir, og ég og hv. þingmaður kannski manna best, að við erum ekkert sérstaklega sammála þegar kemur að þessum málum þannig að mig langaði svolítið að inna hann eftir einu sem lítið var tæpt á, kannski eðli máls samkvæmt, í ræðunni á undan. Það er það hvernig farið var með meirihlutavaldið í allsherjar- og menntamálanefnd þegar málinu var vísað aftur inn til 3. umr. Nú var það þannig að við fengum þessar breytingartillögur meiri hlutans í hendur kvöldið fyrir nefndarfund og maður renndi yfir þetta, hugsaði með sér að mögulega væri þarna eitthvað til bóta en gott væri að geta fengið einhverjar nánari skýringar og útlistanir á því. Síðan er nefndarfundur daginn eftir og þá liggur meiri hlutanum svo mikið á að taka málið út að ekki voru gefin nein færi á því að kalla til gesti til að fara ofan í saumana á þeim breytingum sem hér er þó verið að leggja til.
Þetta finnst mér til marks um léleg vinnubrögð. Mér finnst í svona máli þar sem grundvallarmannréttindi eru undir, í máli sem er búið að takast verulega á um í samfélaginu, að nefndarmenn í lagasetningu eigi að geta mátað þær breytingar sem verið er að gera og var búið að boða með einhverjum fyrirvara en komu mjög seint inn til þeirra sem gæta hagsmuna þess fólks sem undir er með þessum viðkomandi breytingum.
Því langar mig að spyrja hv. þm. Birgi Þórarinsson: Af hverju var ekki hægt að leyfa minni hlutanum að kalla til gesti og eftir atvikum meiri hlutanum líka til að fara yfir þetta? Af því að það lá svo sannarlega ekkert á þegar við vorum að gera þetta fyrir nokkrum vikum síðan, gott ef það eru ekki einhverjar þrjár vikur síðan þannig að nægur tími var til þess að fara yfir þetta í nefndinni áður en málið kæmi hingað aftur inn í þingsal við 3. umr. eins og við stöndum í hér og nú.