útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og verð nú að segja að ég persónulega tel að þetta mál hafi verið afar ítarlega rætt í þessum þingsal. Við þekkjum það öll að það eru búnir að fara fjölmargir dagar hér í umræðu um þetta mál. Hv. þingmaður kemur inn á það að hann hafi ekki getað kallað til gesti og ekki getað kynnt sér þessa breytingartillögu nægilega vel o.s.frv. Það er rétt að halda því til haga að það var boðið að kalla til sérfræðinga ráðuneytisins á fundinn til að ræða einmitt þessar breytingartillögur, fundinn sem hv. þingmaður sat, og því var hafnað. Það var ekki áhugi fyrir því af hálfu minni hlutans að fá sérfræðinga inn á fundinn. Það má svo sem líka halda því til haga að hv. þingmaður hefur haft rúma heila viku til að kynna sér breytingartillögurnar og við erum komnir í 3. umr. og við getum rætt þær fram og til baka. En heilt yfir þá er það skoðun meiri hlutans, og allir samstiga í þeim efnum, að þetta mál sé útrætt. Við höfnuðum engum gestum. Það fengu allir gestir að koma fyrir nefndina þar sem þeirra var óskað og margt fróðlegt sem kom fram í þeim efnum, þannig að ég get ekki tekið undir með hv. þingmanni að það hafi verið illa að þessu staðið. Þessar breytingartillögur liggja fyrir. Það var boðið að kalla til sérfræðinga o.s.frv. Þetta hefur verið rætt í þingsal í fleiri daga og farið til nefndar milli 2. og 3. umr. (Forseti hringir.) þannig að ég held að það hafi nú bara verið vel að þessu öllu saman staðið, hv. þingmaður.