útlendingar.
Frú forseti. Ég hef ekkert á móti þessu. Það sem ég er hins vegar að segja er að þetta er ekki breyting. Þetta er árétting á einhverju sem er þegar til staðar. Meiri hlutinn er að gera breytingar t.d. til að telja fólki trú um að þær muni bæta réttindi barna á flótta. Það er t.d. talað um að við mat Útlendingastofnunar sé heimilt að horfa til ungs aldurs einstaklings sem hefur náð 18 ára aldri, en sambærilegt ákvæði hefur verið í lögum frá 2017. Hér er verið að slá ryki í augun á fólki. Það er verið að láta þetta líta út fyrir eins og að á síðustu metrunum hafi tveir meirihlutaflokkarnir, sem hafa talað fyrir allt annars konar stefnu, náð einhverju í gegn. En þegar horft er í þetta betur eru flestar breytingarnar sem eru gerðar einungis árétting á þeirri stefnu sem er í gildi og á að leiða í lög en engar breytingar frá frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra.