Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Birgir Þórarinsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ef hv. þingmaður vill kalla þetta áréttingar þá er honum frjálst að gera það. Málið liggur alveg ljóst fyrir. Hér er kominn sérstakur kafli eða breyting, eða árétting ef hv. þingmaður vill orða það þannig, þar sem fjallað er um mat á hagsmunum barna. Þetta er bara til bóta, hv. þingmaður, og ekkert annað, ekkert annað. (Gripið fram í: Þetta er sýndarmennska) Þetta er engin sýndarmennska. (Gripið fram í: Þetta er í lögum.) Þetta er bara þvæla og það er verið að reyna að finna eitthvað neikvætt, verið að reyna að tína eitthvað til (Gripið fram í.)og þá dragið þið þetta fram (Gripið fram í.) sem allra síst skyldi vera, að reyna að finna eitthvað neikvætt við börn (Gripið fram í.) þegar kemur að þessu. (Gripið fram í.) Hagsmunir barna verða hafðir í fyrirrúmi, hv. þingmaður, ég get fullvissað þig um það og þetta er mjög mikilvæg breyting og um hana eigum við að sammælast og fagna, hv. þingmaður. (Gripið fram í: Heyr, heyr)