Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og vil jafnframt þakka fyrir samstarfið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd í vinnslu þessa máls sem ég tel að hafi verið ítarlega og vel unnið þar sem allur veturinn hefur verið undir í nákvæmlega þessu máli. Vinnan hófst með kynnisferð okkar til annarra Norðurlanda og við höfum haldið 15 fundi um þetta mál. Ég hef orðið við öllum beiðnum um gestakomu og margir gestir hafa komið oftar en einu sinni. Hv. þingmaður notaði orðið ofbeldi um vinnubrögð meiri hlutans sem er vanvirðing við þá sem raunverulega þola ofbeldi og mér finnst það fyrir neðan okkar virðingu að nota slíkt orðalag um vinnslu í nefndum þingsins.

Hv. þingmaður fer mikinn í því að tala um brot á mannréttindum og brot á réttindum barna. Við skulum byrja á brotum á réttindum barna. Hvað er það nákvæmlega sem hv. þingmaður telur að brjóti á réttindum barna? Er það það að á Íslandi eru sérreglur til þeirra sem hafa hlotið vernd í öðrum löndum um að stjórnsýslan okkar eigi að vinna málið innan 12 mánaða? (Forseti hringir.) Er það það sem hv. þingmaður er að vísa í að sé brot á réttindum barna? (Forseti hringir.) Eða hvað er það í frumvarpinu sem hv. þingmaður er að vísa í?