Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:39]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir spurninguna, þó að mér finnist ótrúlega undarlegt — ég veit stundum ekki hvernig ég á að orða hlutina þannig að þeir skiljist af því að mér hefur þótt þetta tiltölulega skýrt. Það er c-liður 8. gr. frumvarpsins, ef það hjálpar hv. þingmanni, og það kemur fram í greinargerð með þessu ákvæði að það sé beinlínis markmið þessarar breytingar að athafnir annarra en barnsins sjálfs; athafnir foreldra, jafnvel athafnir lögmanns barnsins, einhvers, skerði hagsmuni barnsins. Það skiptir ekki máli hvaða réttindi það eru, á hverju þau byggja, sem er verið að brjóta, sem er verið að skerða. Það er þannig samkvæmt lögum að þú átt rétt á efnismeðferð eftir 12 mánuði ef þú berð ekki ábyrgð á töfum á málinu. Og þarna ber barnið ekki ábyrgð á töfum á málinu og það á rétt á þessari efnismeðferð. Það skiptir ekki máli, hv. þingmaður, þó að þarna séu íslenskar sérreglur. Þetta eru íslensk lög. Það er verið að svipta barn þessum réttindum, sem geta bókstaflega bjargað framtíð þess, vegna athafna annarra. Þetta er alveg skýrt. Það má ekki skerða réttindi barna vegna athafna annarra. Það er brot.