Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er bara hjartanlega ósammála hv. þingmanni um að þetta frumvarp eða útlendingalögin íslensku skerði með einhverjum hætti réttindi barna. Ég held að það sé mjög mikilvægt í þessari umræðu að við erum að tala um sérákvæði er varða efnismeðferð fólks sem er með vernd í öðru landi. Ekkert hinna Norðurlandanna er með slíkt ákvæði. Eru þá hv. þingmenn að halda því fram að Norðurlöndin séu bara brjóta á réttindum barna? Þetta stenst enga skoðun, virðulegur forseti.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann um það sem hún fór töluvert yfir hér varðandi endurteknar umsóknir. Er það skoðun hv. þingmanns að fólk geti komið hingað til lands, sótt um vernd, fengið svör frá stofnuninni, Útlendingastofnun, og frá kærunefnd og geti svo bara sent sömu umsókn aftur og aftur? Það sé bara eðlilegt að íslensk stjórnvöld taki sömu umsókn óbreytta fyrir aftur og aftur? Er hv. þingmaður ekki fullmeðvituð um það sem stendur í nefndarálitinu, að með 7. gr. frumvarpsins er lagt til að endurteknum umsóknum verði að jafnaði vísað frá (Forseti hringir.) nema ef nýjar upplýsingar liggja fyrir í málinu sem leiða til þess (Forseti hringir.) að það eru sýnilega auknar líkur á því að fallist verði á fyrri umsókn? (Forseti hringir.) Er hægt að hafa þetta eitthvað skýrara?

(Forseti (LínS): Ræðutíminn í andsvörum er ein mínúta.)