útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessar áhugaverðu umræður sem hér eiga sér stað um þetta mál enda er þetta mikilvægt mál og varðar okkur miklu að það sé vel búið að fólki sem hingað leitar í neyð.
Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann. Þetta frumvarp sem við erum að breyta varð til 2016 og er búið að gera margar tilraunir til þess að breyta því síðan. Ég vil spyrja hann bara hreint út: Er einhver nauðsyn á að breyta þessu frumvarpi? Stendur það ekki bara ágætlega eins og það er frá 2016? Mér skilst að á þeim tíma hafi verið haft mikið og gott samráð við marga þá aðila sem að þessum málaflokki koma en mér heyrist að núna hafi samráðið ekki farið eins vel fram og þá. Þess vegna er spurningin einföld: Er nauðsyn að breyta góðu frumvarpi eða góðan lögum?