Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:58]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég er smám saman að átta mig á því hvernig hv. þingmenn meiri hlutans ná að sofna á kvöldin þrátt fyrir að ætla að samþykkja þetta hræðilega frumvarp. Það er verið að leggja það fram núna í fimmta skipti og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og núna hv. þm. Jódís Skúladóttir segja að það sé einhvern veginn merki þess að það sé búið að vinna þetta rosalega vel, búið að gera alls konar breytingar á því og annað. Jú, það er sannarlega taktík hjá dómsmálaráðuneytinu að leggja fram eitthvað algjörlega og fullkomlega óbærilega óásættanlegt sem ekki nokkur vafi er á að stríði gegn mannréttindasamningum og taka það svo út og segja: Heyrðu, ókei, nú er þetta í lagi. Þetta er bara taktík. Og já, þetta er hvítþvottur. Ég ætla bara segja það, já, hv. þingmaður.

Varðandi þær breytingar sem hafa orðið á þessu frumvarpi í gegnum tíðina þá eru þær ekki allar í samræmi við einhverjar umsagnir og ábendingar, alls ekki. Þvert á móti hafa þær frekar litast af trendi sem Útlendingastofnun upplifir sem vandamál vegna þess að hún tapar einhverjum málum fyrir kærunefndinni eða dómstólum. Svo jafnar hún sig á því og þá er viðkvæðið: Jæja, ókei, tökum þetta út, við erum ekki sár yfir þessu lengur, og svo bætir hún einhverju öðru inn. (Forseti hringir.) Þetta frumvarp hefur tekið alls konar breytingum fram og til baka en þær eru ekki allar til bóta. (Forseti hringir.) Þær eru svolítið svona hipsum haps og hingað og þangað.