útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég ætla að fá að vera ósammála og vísa til þess að í umræðunni á þessu þingi, í þetta fimmta skipti sem við erum að leggja málið fram, höfum við tekið gríðarlegan tíma, og það vita hv. þingmenn sem sátu í þessari nefnd, í að ræða sérstaklega um niðurfellingu heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Við höfum rætt ýmis atriði sem er verið að breyta hér á milli 2.og 3. umr.
Talandi um óheiðarleika þá er mjög sérstakt að standa hér og kalla þetta hvítþvott og svo að VG geti sofið á nóttunni. Mig langar að koma því á framfæri við hv. þingmann að ég hef lagt mig alla fram um að lesa þetta og ég hef leitað mér upplýsinga. Ég hef setið á fundum. Ég hef heimsótt þrjú lönd. Ég hef lagt mig alla fram og ég er líka löglærð, eins og hv. þingmaður. Mig langar einfaldlega að spyrja: Er það mat hv. þingmanns að enginn í meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar skilji málið eða hvað? Þú trúir því enn þá, (Forseti hringir.) hv. þingmaður, að meiri hlutinn skilji ekki málið.