útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Já, ég trúi því enn þá. [Hlátur í þingsal.] Ég held það í alvörunni enn þá og að hv. þingmenn trúi því t.d. að 15. gr. sé ívilnandi. Ég veit ekki hvernig í ósköpunum er hægt að sannfæra ykkur um það. Ég bara átta mig ekki einu sinni á því. Það er af virðingu sem ég segi: Ég held að þið séuð að misskilja. Það væri verra ef þetta væri allt alveg á hreinu: Jú, heyrðu, við viljum gera þetta. Mér þætti það verra. Ég er í rauninni kannski að hjálpa mér að sofna á kvöldin með því að telja mér trú um að þið skiljið þetta ekki almennilega.
Aftur um þær breytingar sem eru gerðar. Til að nefna þá breytingu sem hv. þingmaður nefndi hérna þá var í alvöru áður í frumvarpinu tillaga um að það væri hægt að þvinga fólk til líkamsrannsókna. Það er öllum ljóst að það er eitthvað sem stenst ekki. Þú getur ekki gert það nema í einhverjum mjög „extreme“-tilvikum. En það var tekið út, það er rétt hjá hv. þingmanni. (Gripið fram í.)
Varðandi hins vegar þennan hvítþvott sem kemur fram í þessari meirihlutabreytingu (Gripið fram í.) þá voru miklar umræður í meðförum nefndarinnar, (Forseti hringir.) ég er sammála því, eða ekki umræður heldur gestakomur og annað — gagnrýni. Það er ekki brugðist við því á neinn hátt í breytingartillögum meiri hlutans, þar er skellt inn að bráðaheilbrigðisþjónusta verði aldrei felld niður. (Forseti hringir.) Líkt og ég sagði í ræðu minni rétt áðan var aldrei neinn vafi um það, aldrei. (Gripið fram í: Ó …)(Gripið fram í: … lýsingar á því …) Það var það eina sem var skýrt. (Forseti hringir.) Allt annað er óskýrt (Gripið fram í: … laus við það … það er allt annað. ) og það er enn þá óskýrt. Það er verið að árétta hluti (Gripið fram í: Það er allt annað. ) sem eru á hreinu. (Gripið fram í: Það er allt annað heldur en … ) (Forseti hringir.) — Er ekki þingmaðurinn með orðið? (Gripið fram í: Nei.)
(Forseti (LínS): Nei, þingmaðurinn er ekki …)
Það er ekki verið að bregðast við athugasemdum og gagnrýni á þetta frumvarp með neinum hætti með þessum breytingartillögum meiri hlutans.
(Forseti (LínS): Forseti vill ítreka það enn og aftur að ræðutíminn er ein mínúta í andsvari, ekki ein og hálf, ein mínúta og fjörutíu sekúndur eða ein mínúta og fimmtíu sekúndur.)