Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:13]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég reikna ekki með því að hálfur heimurinn hafi einhvern áhuga á því yfir höfuð að koma hingað til Íslands. Hv. þingmaður nefndi það m.a. hér í ræðu sinni að það gætu komið hingað 500 milljónir manna. Hvar eru þeir? Þeir eru ekki hér og hafa engan áhuga á að koma hingað. Við flytjum inn vinnuafl af því við þurfum á vinnuafli að halda. Við tökum á móti fólki af því að við viljum sýna manngæsku og þegar fólk er í hættu þá tökum við á móti því, alveg eins og við myndum sjálf vilja láta taka á móti okkur ef við værum í hættu. Það er bara veruleikinn.

Í kærunefnd útlendingamála sitja löglærðir menn sem kunna auðvitað sitt hlutverk. Hún metur stöðuna í Venesúela alveg eins og við mátum stöðuna í Úkraínu, að fólk væri í hættu. Þess vegna tökum við á móti fólki, ekki bara einhverjum ríkum sem geta komið hér og séð fyrir sér sjálfir heldur fólki sem er í raunverulegri hættu. Það er búið að meta það af kærunefnd útlendingamála að þessi hópur sem býr í Venesúela sé í hættu. Það kemur fram í þessu frumvarpi að það eigi að fara að meta það hvort og hvenær fólk sé hættu. Við sjáum það bara hér, við erum að rífast um það hverjir eru í hættu og hverjir ekki. Hvernig ætlum við að gera þetta? Kærunefndin er búin að segja okkur hvernig við eigum að gera þetta. Hvenær ætlum við að fara eftir lögum og hvenær ekki? Við ákváðum sjálf að hleypa fólki frá Úkraínu hingað inn. Kærunefndin hleypti fólki frá Venesúela hingað inn. Við erum með stjórnvald sem sér um þessa hluti fyrir okkur og þess vegna hefur fólk frá Venesúela komið hingað. (Forseti hringir.) En flestir frá Venesúela eru aldeilis ekki að láta okkur sjá fyrir sér, (Forseti hringir.) þeir vinna fyrir sér sjálfir.