útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það liggur algjörlega á borðinu að ef ástandið er ekki svona slæmt í Venesúela eða ef ástandið er svona slæmt þá hefur þessi breytingartillaga mín ekkert gildi því að í henni er eingöngu verið að tala um efnahagslegar ástæður, ekkert annað. Það er hvergi verið að segja í minni breytingartillögu að það eigi að koma í veg fyrir að fólk sem er að flýja ógn og stríð sé tekið hingað og að ekki eigi að taka utan um það, engan veginn — hvergi.
Hins vegar er annað sem virðist vera sleppt og skautað algjörlega fram hjá. Það er hvernig við raunverulega tökum á móti fólkinu sem við erum að taka á móti, hvar við reynum að hola því niður og hvað við gerum fyrir þetta fólk þegar við erum að gefa því betra líf hérna með virkum fíklum niðri við höfn. Að hugsa sér þvílíkt og annað eins. Það eru að koma tugir barna í skóla og það veit enginn að það er von á þessum börnum. Það er ekki tekið utan um þetta fólk. Þau eru nánast jaðarsett í samfélaginu um leið og þau koma hingað. (GE: Það er ekki þeim að kenna.) Það er bara þannig sem það er. Það er kannski eins gott að við reynum að hysja upp um okkur brækurnar og gera þetta almennilega en með tilliti til þess að við erum örríki og getum ekki gert allt fyrir alla. Við getum ekki einu sinni sinnt okkar eigin samfélagi eins og það stendur í dag, hvað þá annað. (Gripið fram í.)