útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hv. þingmaður hefur auðvitað áratugareynslu af vettvangi fjölmiðla og ég heyri það á ræðu hans að hann er mjög upptekinn af því að reyna að lesa í hvað ráðherrar segja, hvað þingmenn segja og reyna að búa til einhvers konar samsæriskenningar um hvernig vinnubrögðin eru í þessum meiri hluta. Ég vil bara fullyrða við hv. þingmann að hann þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Við erum bara alveg sammála og stöndum þétt með þessu frumvarpi og þeim breytingum sem hér eru.
Mig langar aftur á móti að spyrja hv. þingmann, vegna þess að ég á enn erfitt með að greina það: Hver stefna Viðreisnar er í útlendingamálum? Hv. þingmaður kom inn þetta á varðandi stjórnarskrána og þá umræðu sem við höfum átt hér, hann þekkir vel til þeirra svara sem hafa komið frá ráðuneytinu og þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Hvað er það í þessu frumvarpi sem hv. þingmaður er hræddur við að stangist á við stjórnarskrá Íslands?