Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:45]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir þetta. Það sem ég er að segja er að það vantar bara ítarlegt mat á því, rétt eins og kemur fram í áliti Mannréttindastofnunar, hvernig frumvarpið skarast á við stjórnarskrána. Ég efast ekki um að hv. þingmaður hefur lesið þær umsagnir sem komið hafa um málið þannig að hún þekkir alveg ágætlega mörg af þeim álitaefnum sem þarna eru undir. (Gripið fram í.) Auðvitað er það þannig, af því að hv. þingmaður nefnir 30 daga regluna, að það getur verið einhver tiltekinn hópur fólks sem á svo sannarlega að yfirgefa landið. En við erum að benda á það að það er líka hópur sem getur ekki yfirgefið landið. Það er hópur sem stjórnvöld hafa stundum metið sem svo að sé vísvitandi að tefja mál sitt þegar það er raunverulega þannig að þau geta ekki nálgast skilríki eða hafa ekki (BHar: Það er undanþáguákvæði) tengsl við landið. Já, menn hafa áhyggjur af því að þetta undanþáguákvæði sé einfaldlega ekki nægjanlega sterkt. Ég hvet hv. þingmann að fara aðeins yfir það, og ég efast reyndar ekkert um að hún hafi gert það, sem Rauði krossinn hefur sagt (Forseti hringir.) um þennan hóp (Forseti hringir.) og hver staðan getur mögulega orðið ef þetta allt saman verður að lögum.