útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir ræðuna. Mér þykir þetta samtal sem eigum í þessum þingsal mjög ánægjulegt. Ég hefði gjarnan líka viljað eiga það líka á fyrri stigum en ég fagna því þótt seint sé. Mig langar að ræða það sama og hv. þingmaður gerði að upphafsumfjöllunarefni í ræðu sinni sem er starfið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Nú er hv. þingmaður nýr þingmaður líkt og sú er hér stendur, þ.e. við komum ný inn á þing eftir síðustu kosningar og það er ýmislegt sem hefur komið mér á óvart í þessari vinnu.
Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann út í um vinnu allsherjar- og menntamálanefndar í þessu máli varðar úrvinnslu þeirra ábendinga sem komu til allsherjar- og menntamálanefndar og viðbrögð meiri hlutans við beiðni minni hlutans um að gerð verði stjórnskipuleg úttekt á frumvarpinu. Er það tilfinning hv. þingmanns (Forseti hringir.) að tekið hafi verið raunverulegt tillit til þeirra umsagna sem bárust? Nú komu gestir, það er rétt sem hefur verið sagt hérna (Forseti hringir.) af hálfu meiri hlutans, það komu margir gestir og margar umsagnir. Er það tilfinning hv. þingmanns að það hafi verið hlustað á þær umsagnir?