Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2023.

útlendingar.

382. mál
[19:48]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Stutta svarið er nei. Það er ekki mín tilfinning að það hafi verið nægilega hlustað eftir því sem t.d. umsagnaraðilar hafa haft um málið að segja. Við getum t.d. bara nefnt það að af öllum þeim umsögnum sem bárust um málið þá voru þær, held ég, nánast allar, yfirgnæfandi meiri hluti, að tæta það í sig lið fyrir lið. Auðvitað er síðan hóað á þetta fólk og það kemur fyrir nefndina og fær að lýsa sínum sjónarmiðum og annað. Hefur það skilað sér í einhverjum breytingum á frumvarpinu þannig að tekið hefur verið tillit til þess sem veigamest er í þeim athugasemdum sem komið hafa fram? Nei, bara alls ekki, það hafa verið gerðar einhverjar minni háttar breytingar hér og þar. En eftir standa, held ég, alvarlegustu atriðin sem menn hafa verið að benda á og þar finnst mér eiginlega sýnu alvarlegast skerðingin á öllum grundvallarmannréttindum eftir 30 daga.